Til baka í yfirlit
16. desember 2015
Eyrarrósin 2016 auglýsir eftir umsóknum

Eyrarrósin verður veitt í tólfta sinn snemma árs 2016, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur verðlaun að upphæð 1.650.000 krónur.
Frú Dorrit Moussaieff, forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar.
Umsóknum skal fylgja:
- Lýsing á verkefninu
- Tíma- og verkáætlun
- Upplýsingar um aðstandendur
- Fjárhagsáætlun
Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. janúar 2016 og verður öllum umsóknum svarað. Þær skulu sendar með tölvupósti til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Listahátíðar í síma 561–2444 og á vefsvæði Eyrarrósarinnar www.listahatid.is/eyrarrosin
Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar