Til baka í yfirlit
18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót

Fréttatilkynning frá Heilbrigðisnefnd Suðurlands:
Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur ákveðið að hefja nauðsynlegan undirbúning vegna þeirra breytinga sem verða á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga um næstu áramót.
Með lagabreytingum sem taka gildi 1. janúar 2027 verða verkefni sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur sinnt um árabil að verulegu leyti færð frá sveitarfélögunum til ríkisins.
Í ljósi þess hefur heilbrigðisnefnd falið framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að hefja formlegt ferli vegna starfsloka starfsfólks og uppsagnar á leiguhúsnæði embættisins, í samræmi við gildandi lög, kjarasamninga og aðra samninga. Jafnframt er formanni nefndarinnar falið að segja framkvæmdastjóra upp störfum með sama hætti.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er byggðasamlag sveitarfélaga á Suðurlandi og hefur um langt skeið sinnt mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðiseftirlits, hollustuhátta, mengunarvarna og matvælaeftirlits á starfssvæði sínu.
Heilbrigðisnefnd leggur ríka áherslu á að vel verði staðið að þessum umfangsmiklu breytingum og að hagsmunir starfsfólks verði hafðir að leiðarljósi í því ferli sem nú tekur við. Starfsfólk Heilbrigðiseftirlits Suðurlands býr yfir mikilli reynslu og sérþekkingu sem hefur byggst upp á löngum tíma og nefndin telur mikilvægt að sú þekking nýtist áfram við eftirlit og þjónustu á Suðurlandi.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands vill við þessi tímamót færa framkvæmdastjóra og starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Suðurlands innilegar þakkir fyrir þeirra mikilvæga og faglega starf í þágu íbúa, sveitarfélaga og atvinnulífs á Suðurlandi. Nefndin kann því bestu þakkir fyrir gott samstarf og óskar starfsfólkinu alls hins besta í þeim breytingum sem fram undan eru.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hefur þegar fundað um málið og tekur heilshugar undir áherslur heilbrigðisnefndar. Stjórnin ítrekar mikilvægi þess að faglega sé staðið að umskiptunum gagnvart starfsfólki og leggur áherslu á að ríkið nýti sér þann mikla mannauð og staðarþekkingu sem þegar er til staðar á Suðurlandi við uppbyggingu á nýju eftirlitskerfi.



