Til baka í yfirlit
31. október 2011
Ársþing SASS í Vík í Mýrdal - fundargerðir, erindi og ályktanir.

Ársþing SASS 2011 var haldið í Vík í Mýrdal 28. og 29. október sl. Á þinginu voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Jafnframt var haldinn fyrsti ársfundur Þjónustusvæðis málefna fatlaðra á Suðurlandi. Auk aðalfundanna var haldinn stefnumótunarfundur á vegum atvinnuþróunarfélagsins. Þá fluttu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og Björgvin Sigurðsson 1. þingmaður Suðurkjördæmi ávörp. Sigurður Tómas Björgvinsson stjórnsýslufræðingur kynnti nýútkomna skýrslu um eflingu sveitarstjórnarstigsins á Suðurlandi og Héðinn Unnsteinsson sérfræðingur hjá Forsætisráðuneytinu hélt erindi um Ísland 2020 - Sóknaráætlanir landshluta – fjárfestingaráætlun og nýtt vinnulag. Fundargerðir, ályktanir, skýrslur og erindi má finna hér á heimasíðunni
Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar