EN

Til baka í yfirlit

3. nóvember 2026

Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) fór fram á Hvolsvelli dagana 29. til 30. október sl. Ársþingið er æðsta vald samtakanna og mikilvægasti samstarfsvettvangur sunnlensks sveitarstjórnarfólks þar sem rædd er stefnumótun og forgangsröðun verkefna fyrir landshlutann allan.

Þótt stóra heildarályktun þingsins, undir yfirskriftinni „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“, hafi eðlilega verið hvað mest í umræðunni, stóðu þingfulltrúar frá öllum sveitarfélögum á Suðurlandi einnig að baki fjölda annarra brýnna ályktana. Kröfurnar snúa að því að tryggja að velferð, innviðir og menntun á Suðurlandi haldi í við þá miklu uppbyggingu og fólksfjölgun sem á sér stað á svæðinu.

Hér eru helstu áherslur úr ályktunum ársþingsins að þessu sinni:

Menntun, velferð og öryggi í samræmi við raunverulegt álag

Þingfulltrúar lögðu áherslu á að fjárframlög til innviða og opinberrar þjónustu verði að taka mið af raunverulegum mannfjölda á hverjum tíma. Suðurland tekur á móti miklum fjölda ferðamanna og hýsir umfangsmikla sumarhúsabyggð, sem skapar álag langt umfram skráðan íbúafjölda. Krafist er þess að fjármögnun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) og löggæslu taki mið af þessu. Þá var skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kvöld- og helgarþjónustu í heimahjúkrun á öllu starfssvæði HSU.

Í menntamálum var ákall til ríkisvaldsins um að grípa til tafarlausra aðgerða við undirbúning og uppbyggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) á Selfossi. Jöfn tækifæri ungmenna af öllu Suðurlandi til náms eru forsenda byggðafestu og samhliða því þarf að stórefla aðgengi að starfs- og iðnnámi í landshlutanum og bæta almenningssamgöngur.

Sókn í atvinnulífi og efling hafna

Öflugt atvinnulíf er hjartað í sunnlensku samfélagi. Á þinginu var þeim vaxtartækifærum fagnað sem felast í sjávarútvegi og lagareldi á svæðinu og þess krafist að framlög í Hafnarbótasjóð verði stórefld til að mæta brýnni innviðauppbyggingu í stærstu höfnum Suðurlands: í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og á Hornafirði. Þingfulltrúar mótmæltu jafnframt harðlega boðuðum 45% niðurskurði á Sóknaráætlunum landshlutanna og krefjast þess að hann verði dreginn til baka, enda er um að ræða lykilfjármagn til nýsköpunar og atvinnuþróunar. Til að tryggja fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga til framkvæmda var jafnframt ályktað um að ríkið tryggi fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts af lögbundnum innviðaframkvæmdum.

Orkuöryggi, sjóvarnir og umhverfismál

Til að styðja við orkuskipti og vöxt atvinnulífs ályktaði ársþingið um mikilvægi þess að hraða uppbyggingu flutnings- og dreifikerfis raforku á Suðurlandi. Á sama tíma var krafist afnáms á undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati svo nærumhverfið njóti eðlilegs ávinnings af orkuvinnslu.

Í umhverfismálum skoraði þingið á ríkið að efla styrki til svæðisbundinna úrgangsinnviða í dreifðum byggðum og að endurskoða skilgreiningar á friðuðu landbúnaðarlandi í samráði við sveitarfélög. Loks beindi þingið ákalli til yfirvalda um að tryggja nauðsynlegt fjármagn til sjóvarna við Vík í Mýrdal hið fyrsta, til að fyrirbyggja landrof og verja Þjóðveg 1.

smelltu hér til að sjá ályktanirnar í heild sinni