EN

Til baka í yfirlit

3. júní 2013

31,5 milljón til 28 verkefna til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi

Í apríl síðast liðnum auglýstu Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eftir umsóknum um styrki til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi. Um var að ræða fjármuni til styrkveitinga úr Vaxtarsamningi Suðurlands, Sóknaráætlun Suðurlands og fjármagn sameiginlegum sjóðum sveitarfélaganna sem áður var úthlutað af Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands. Þessar styrkveitingar hafa nú verið sameinaðar hjá SASS með sameiginlegum úthlutunum tvisvar á ári. Á stjórnarfundum SASS og Vaxtarsamnings Suðurlands, sem haldnir voru á dögunum, var ákvarðað um styrkveitingar fyrri hluta þessa árs.

SASS bárust alls 89 umsóknir að þessu sinni og hafa þær aldrei verið fleiri á þessu sviði. Samþykkt var að veita 28 verkefnum styrk að upphæð samtals 31.450.000, kr.

Verkefni:

Styrkþegi:

Upphæð:

Uppbygging innviða og markaðssókn perlumölsverksmiðjunnar á Stokksnesi

Litlahorn ehf.

3.500

Uppbygging fuglatengdrar ferðamennsku á Suðurlandi

Óstofnaður klasi - Guðríður Ester Geirsdóttir

2.500

Ferðamálaklasi í Flóahreppi

Óstofnaður klasi - Iðunn Ír Ásgeirsdóttir

2.500

Uppbygging alþjóðlegs rannsóknartengds framhaldsnáms á Selfossi í jarðsjálftavísindum

Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði

2.500

Markaðssókn á humarsoði til Danmerkur

Mathúsið ehf.

2.000

Markaðssókn Aqua Icelander, þjálfunarbúnaðs fyrir hesta, á markaði erlendis

Formax Paralamp ehf.

2.000

Markaðssókn sjávar- og grænmetisrétta á erlenda markaði

Grímur Kokkur ehf.

2.000

Klasasamstarf ferðamála í Hveragerði

Ferðamálasamtök Hveragerðis

1.500

Samstarf um moltugerð fyrir lífræna bændur á suðurlandi

Sólheimar ses

1.500

Uppbygging, merkingar og markaðssókn - Gamla laugin og Hverahólminn á Flúðum

Björn Kjartansson

1.000

Þróun og markaðssókn alþjóðlegs sumarnáms

Íslenski bærinn

1.000

Markaðssókn inn á nýja markaði

Millibör ehf.

1.000

Uppbygging sjálfbærrar rekstrareiningar Kötlu Jarðvangs

Katla jarðvangur ses

1.000

Icelandic Horse Expo - kau

Háskólafélag Suðurlands

1.000

Útgáfa á korti með sölustöðum staðbundinna matvæla í héraði

Ríki Vatnajökuls

600

Icelandic HorseWorld - visitor center

Ice events ehf.

500

Markaðssetning afþreyingar allt árið um kring - hestasýningar o.fl.

Kálfholt hestaferðir ehf.

500

Markaðssetning hestasýninga

Hestval ehf.

500

Markaðssetning afurða frá Efstadal

Efstidalur

500

Markaðssókn leiðsagnar um nýjar gönguleiðir

Iceguide ehf.

500

Markaðssetning heilsutengdrar ferðaþjónustu

Lára Marteinsdóttir

500

Markaðssetning matarminjagripa

Friðheimar ehf.

500

Framleiðsla á repjuolíu til manneldis - vöruþróun og markaðsmál

Hjalti Egilsson

500

Markaðsgreining sjávarafurða

Hafnarnes VER hf.

500

Jöklaís - sælgæti úr sveitinni - vöruhönnun og markaðsmál

Jón Kristinn Jónsson og Sigurlaug Gissurardóttir

450

Hámörkun aflaverðmæta smábáta

Sólsker ehf.

300

Vöruþróun á geitaafurðum frá Lækjarhúsum í suðursveit

Laufey Guðmundsdóttir

300

Getur kortlagning auðlinda/segla í Kötlu Jarðvangi eflt ferðaþjónustu, nýsköpun og vöruþróun á jarðvangssvæðinu?

Guðlaug Ósk Svansdóttir

300

Góð kynning var á styrkveitingunum að þessu sinni og voru meðal annars haldnir 9 kynningarfundir víðsvegar um landshlutann. Greinilegt er að mikil eftirspurn er eftir fé til ýmissa þarfa verkefna til uppbyggingar í atvinnulífi á Suðurlandi. Það er von samtakanna að úthlutanir þessar beri tilætlaðan árangur, um eflingu atvinnulífs, nýsköpunar og fjölgun starfa á Suðurlandi – með tíð og tíma. Stuðningur SASS er þó ekki einvörðungu bundinn við styrkveitingar, því ráðgjöf á vegum SASS stendur öllum til boða. Í sumum tilvikum ráðgjöf sá stuðningur sem skilar mestum árangri. Öllum umsækjendum verður boðið viðtal hjá ráðgjöfum SASS í framhaldi, um stöðu og framtíð þeirra verkefna og um mögulega aðkomu SASS að þeim framfara verkefnum