EN

Til baka í yfirlit

31. maí 2021

Úthlutun Lóu - styrkja til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni

Think Rural, Think Digital, Think Ahead! - Sjö landa hakkaþon NORA 2021 verður haldið 19.-21. mars

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kynnti þann 31. maí 29 verkefni sem fá úthlutun úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Verkefni í öllum landshlutum hljóta styrk og nema hæstu styrkir 10 milljónum króna. Verkefnin sem hljóta styrk eru af margvíslegum toga og til marks um fjölbreytt atvinnulíf um land allt. Sem dæmi má nefna styrk til uppbyggingar velferðartæknimiðstöðvar á Norðurlandi eystra, þróunvettvangs sjávarlíftækni í Vestmannaeyjum, nýsköpun í vinnslu skógarafurða á Austurlandi og uppbyggingu vistkerfis orkuskipta á Vestfjörðum,

Fjöldi umsókna um styrki úr Lóu fór fram úr okkar björtustu vonum, en gefur jafnframt hátt og skýrt til kynna hversu mikil gróska er í nýsköpunarverkefnum um allt land. Það er nauðsynlegt að styðja við þennan slagkraft og það er gott að geta greint frá því að Lóa er komin til að vera næstu ár. Ég óska styrkþegum til hamingju og hlakka til að sjá verkefnin vaxa og dafna“ segir Þórdís Kolbrún.

Styrkirnir voru auglýstir í febrúar en ákveðið var að hækka þá upphæð sem til ráðstöfunar er um helming. Þetta var gert í ljósi mikillar aðsóknar, en alls bárust 236 umsóknir í Lóu. Í þessari fyrstu úthlutun fá verkefnin styrki sem nema rúmum 147 milljónum króna. Matshópur fór yfir allar umsóknir og gerði í kjölfarið tillögur til ráðherra um veitingu styrkja. Ráðherra og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, formaður matsnefndar Lóu, greindu frá styrkveitingum í beinni útsendingu í dag á vegum Nýsköpunarviku.

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi. Hún styður einnig við annan mikilvægan stuðning á vettvangi nýsköpunar hringinn í kringum landið, svo sem sóknaráætlun landshlutanna og byggðaáætlun.

Verkefni sem fengu nýsköpunarstyrk fyrir landsbyggðina úr Lóu


















Styrkþegi

LandshlutiHeiti verkefnisStyrkur

Velferðatæknimiðstöðin

Norðurland eystra

Velferðartæknimiðstöð á Norðurlandi eystra (Veltek)

10.000.000

Þekkingarsetur Vestmannaeyja (ÞSV)

Suðurland

Vettvangur sjávarlíftækni á Íslandi

10.000.000

Textílmiðstöð Íslands og Þekkingarsetur á Blönduósi

Norðurland vestra

Uppbygging TextílLabs og -Klasa

9.000.000

Fóðurverksmiðjan Laxá

Norðurland eystra

Þróun á lífplasti úr Cyanobakteríum

8.000.000

Blámi, Eimur og Orkídea

Allt landið

Nýsköpunargarður: Stafrænn vettvangur fyrir nýsköpun í sjálfbærni- og orkumálum

8.000.000

Páll Marvin Jónsson fyrir óstofnað sjálfseignarfélag

Suðurland

Ölfus Cluster, þekkingarsetur

7.000.000

Blábankinn - Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri

Vestfirðir

Blábankinn - nýsköpun á Vestfjörðum

7.000.000

Eimur

Norðurland eystra

Hringrás nýsköpunar á Norðurlandi

7.000.000

Green Fuel ehf.

Norðurland eystra

Kolefnisfrítt eldsneyti úr vistvænni orku

6.000.000

Skógarafurðir ehf

Austurland

Tæknisögunarmylla fyrir íslenskar skógarafurðir

6.000.000

Breið þróunarfélag ses.

Vesturland

Nýsköpunar- og samfélagsskipið AK-Breið

6.000.000

True Westfjords

Vestfirðir

D-styrktur Dropi - Frá hæstu hæðum að dýpstu djúpum

6.000.000

Blámi

Vestfirðir

Vistkerfi orkuskipta á Vestfjörðum

5.000.000

Eldey Aqua ehf

Vestfirðir

Eldey Aqua þararækt

5.000.000

Taramar Seeds ehf (TMS)

Suðurnes

ICEBLU - Lífvirkar húðvörur úr örþörungum

5.000.000

Djúpið, félag um frumkvöðlasetur

Vestfirðir

Djúpið, félag um nýsköpunarumhverfi á Vestfjörðum

4.000.000

Capretto ehf.

Norðurland eystra

Hagnýting hugverka til eflingar atvinnulífs á landsbyggðinni

4.000.000

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Suðurland

Landsbyggðin.is kallar

4.000.000

Hallormsstaðaskóli

Austurland

Tilraunaeldhús; uppbygging og þjónusta

4.000.000

Yggdrasill Carbon ehf.

Austurland

Þróun og markaðssetning vottaðra kolefniseininga

3.500.000

GeoSilica Iceland ehf

Suðurnes

Möguleikar á nýtingu jarðhitakísils frá Reykjanesvirkjun

3.000.000

Celia Lobsang Harrison

Austurland

Herðubreið - miðstöð fyrir nýsköpun á Seyðisfirði

3.000.000

VETNIS ehf

Suðurnes

Grænt varaafl

3.000.000

Norðursigling hf.

Norðurland eystra

Vistvænni skrúfur - lækkað kolefnisspor

3.000.000

Upplifunargarður Borgarnesi

Vesturland

Upplifunargarður og LazyTown studio í Borgarnesi

3.000.000

Háskólafélag Suðurlands ehf

Suðurland

Frumkvöðlasetur Hfsu og Atorku

2.500.000

ALGÓ ehf

Vesturland

Sæmeti - bragðmögnuð fæðubót

2.000.000

Hacking Hekla

Allt landið

Lausnamót á landsbyggðinni

2.000.000

Markaðsstofa Norðurlands

Norðurland eystra

Taste North Iceland

1.500.000




Nánari upplýsingar má finna hér.