Til baka í yfirlit
13. janúar 2015
Tómstundastyrkur í Ásahreppi

Við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2015-2018 var samþykkt að taka upp tómstundastyrki, hvatagreiðslur fyrir börn upp að 18 ára aldri, að hámarki 50 þúsund á ári. Markmið hvatagreiðslna er að gera börnum með lögheimili í Ásahreppi kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og að efla íþrótta- og annað forvarnastarf í sveitarfélaginu. Meginmarkmið tómstundastyrkja sem þessa er að öll börn og ungmenni geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar