Til baka í yfirlit
26. febrúar 2010
Þjóðfundur á Suðurlandi 6. mars.
Þjóðfundur á Suðurlandi, sem hluti af fundarröð Sóknaráætlunar 20/20, verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands, laugardaginn 6. mars frá kl. 11:00 til 18:00. Til fundarins er boðið hópi Sunnlendinga sem valdir eru úr þjóðskrá af handahófi. Auk þess er boðið til fundarins fulltrúum hagsmunaaðila á Suðurlandi.
Til að fundurinn nái markmiðum sínum þarf að tryggja ákveðinn fjölda fundargesta og því er mikilvægt að fundargestir svari boðsbréfi með staðfestingu um mætingu, boðun eða afboðun. Í stað þeirra sem afboða sig munu fundarboðendur boða nýja einstaklinga. Því eru fundargestir hvattir til að svara bréfi fundarboðenda eigi síðar en í dag föstudaginn 26. febrúar. Staðfestingu skal tilkynna á netfangið sass@sudurland.is eða í síma 4808200. Nánari upplýsingar er að finna á www.island.is/endurreisn/soknaraetlun-islands/



Fleiri fréttir

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar

10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi
Lesa nánar

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Lesa nánar

3. nóvember 2026
Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans
Lesa nánar