Til baka í yfirlit
18. október 2016
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum um ábyrgðartryggingar

Svanni veitir ábyrgðartryggingar til fyrirtækja í eigu kvenna en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu.
Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu.
Gerð er krafa um að verkefnð leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:
- Markaðskostnaðar
- Vöruþróunar
- Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.
Lán skal að jafnaði ekki fara yfir 10.milljónir króna.
Með umsókn skal skila eftirfarandi gögnum:
- Viðskiptaáætlun
- Fjárhagsáætlun
- Endurgreiðsluáætlun
- Staðfestingu á eignarhaldi fyrirtækis
Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs má finna á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is og er umsóknarfrestur til og með 7.nóvember næstkomandi.
Mögulegt er að sækja um lán og lánatrygginu árið um kring en úthlutanir eru að hausti og að vori.
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins í síma 531-7080 eða í netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is
Fleiri fréttir

24. nóvember 2026
Starfsfólk SASS sótti nýja þekkingu á norræna byggðaþróunarráðstefnu í Árósum
Lesa nánar

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Lesa nánar

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Lesa nánar

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar