Til baka í yfirlit
13. ágúst 2019
Opinn kynningarfundur í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Heilbrigðisstefna til ársins 2030
Opinn kynningarfundur í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
14. ágúst kl. 17 – 19.
Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030
var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót
fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Á fundinum verður fjallað um hvað
felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og
hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í
dreifðari byggðum landsins.
Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, en
fundurinn á Suðurlandi er þriðji í röðinni.
Drög að dagskrá:
- Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
- Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands – Sýn forstjóra
- María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands – Áhrif heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ.
- Pallborðsumræður Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðum: - Eva Björk Harðardóttir, sveitarstjóri í Skaftárhreppi og formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga - Ásthildur Knútsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu gæða og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu
- Heilbrigðisráðherra – samantekt
- Fundarslit
Fundarstjóri: Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og
formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Fundurinn verður einnig sendur beint út á facebooksíðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.



