Til baka í yfirlit
13. september 2006
Nýafstaðið ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið 7. og 8. september sl. á Hótel Örk í Hveragerði. Þingið sóttu um 100 manns, þar af 53 kjörnir fulltrúar. Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar. Þingið samþykkti ályktanir um ymis mál, sem hægt er að kynna sér nánar hér á síðunni. Á þinginu voru kosnar nýjar stjórnir og nefndir. Formenn stjórna eru Gunnar Þorgeirsson sem var endurkjörinn formaður SASS, Snorri Finnlaugsson formaður Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Elfa Dögg Þórðardóttir formaður stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands og Kristín Traustadóttir formaður stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands. Heilbrigðisnefnd Suðurlands á eftir að skipta með sér verkum.


Fleiri fréttir

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar

10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi
Lesa nánar

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Lesa nánar

3. nóvember 2026
Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans
Lesa nánar