Til baka í yfirlit
17. maí 2013
Ný starfsstöð SASS á Hvolsvelli

SASS hefur opnað starfsstöð á Hvolsvelli. Starfsstöð SASS mun vera að Ormsvöllum 1, Hvolsvelli, í sama húsnæði og skipulags- og byggingarfulltrúi sveitarfélagsins hefur aðsetur. Þjónusta SASS við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í landshlutanum snýr að ráðgjöf og styrkveitingum á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Á því sviði starfa einstaklingar sem hafa aðsetur á Höfn, í Vestmannaeyjum og á Selfossi og nú einnig Hvolsvelli. Tilkoma starfsstöðvar SASS á Hvolsvelli byggist að hluta til á því að starfsmaður SASS, Þórður Freyr Sigurðsson, er búsettur á Hvolsvelli. Þórður mun því hafa aðsetur þar að hluta en áfram að hluta á Selfossi. Starfsaðstaðan mun einnig nýtast öðrum starfsmönnum SASS sem allir vinna þvert á landshlutann, í fjölbreyttum verkefnum á sviði atvinnuþróunar og menningarmála.
Þorvarður Hjaltason og Ísólfur Gylfi Pálmason undirrita leigusamning.
Fleiri fréttir

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Lesa nánar

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Lesa nánar

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar