Til baka í yfirlit
28. maí 2018
Njálurefillinn – Njálugáttin
Lýsing
Um er að ræða gerð fræðsluefnis í tengslum við Njálurefilinn – annars vegar leiðbeiningar fyrir kennara og hins vegar verkefnablöð og lýsingar fyrir nemendur. Þemað er sköpun. Efnið er miðað við mið- og yngri stig grunnskóla og tengt við Aðalnámskrár grunnskóla. Efnið er tengt íslensku, list- og verkgreinum.
Efnið er aðgengilegt kennurum og nemendum í grunnskólum landsins í gegnum heimasíðuna „www.njalugattin.is“. Við vinnslu var horft til þess að efnið sé fræðandi en á sama tíma tengist það veruleika nemenda, ýti undir tækifæri til samstarfs og sameiginlegrar upplifunar. Undir gáttinni eru tenglar á aðrar síður og efni sem tengist Njálu og getur komið að notum við kennslu. Vefurinn hentar öllum sem hafa áhuga á aðfræðast um Njálu og refilinn.
Markmið
Efninu er ætlað að vera skemmtileg leið til að kynnast menningararfi okkar betur, vekja áhuga nemenda, forvitni og ýta undir lærdóm í gegnum sköpun.
Efnið gefur og kennurum hugmyndir og leiðbeiningar um hvernig nýta má Njálurefilinn í kennslu og tengja inn í mismunandi greinar. Efnið getur aukið fjölbreytni í kennslu og gefið kennurum tækifæri til að nota nýtt efni, fara nýjar leiðir.
Markmið er að verkefnið skapi jákvæða tengingu milli safnsins/Njálurefilsins og skóla/samfélagsins.
Afurð og ávinningur
Njálugáttin verði fysti áfangastaður þegar kennarar, nemendur og foreldrar (sem og allir aðrir) leita efnis í tengslum við Njálu og Njálurefilinn, hvort sem er til náms, leiks eða fróðleiks.
Njálugáttin verði samnefnari fyrir allt sem tengist Njálu og auðveldi aðgengi að fróðleik um Njálu. Stuðli að aukinni vitund um Njálu og stuðli að samvinnu.
Njálurefill
Verkefnastjórar: Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir og Eva Þengilsdóttir
Tölvupóstur: njalurefill@gmail.com
Heimasíða: njalugattin.is og njalurefill.is
Sími: 8618687
https://youtu.be/9pdoooAYOcc
Hvert og eitt safn kynnti verkefni sín á sameiginlegri kynningu 31. maí 2018 og má finna öll kynningarmyndböndin hér.

Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar