Til baka í yfirlit
9. apríl 2019
Námskeið í markaðsetningu á netinu

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga standa fyrir námskeiði í markaðssetningu á netinu og verður það haldið í Fjölheimum, Tryggvagötu 13 á Selfossi 29. og 30 apríl n.k.
Kennarar eru Edda Sólveig Gísladóttir og Gunnar Thorberg Sigurðsson frá Kapli markaðsráðgjöf.
Á fyrri degi námskeiðsins verður farið yfir grunninn í markaðssetningu, markaðssetningu á netinu og samfélagsmiðla í markaðssetningu. Seinni daginn fá svo þáttakendur einkaráðgjöf þar sem farið verður yfir fyrirliggjandi gögn hvers og eins í markaðssetningu og forgangsröðun með aðgerðalista unnin.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem þurfa að vera sýnilegir með vöru eða þjónustu á netinu og er styrkt af Sóknaráætlun Suðurlands.
Verð kr 7.500, skráningu lýkur 25. apríl og athugið að takmarkaður sætafjöldi er í boði
Dagskrá námskeiðs:
Mánudagur 29. apríl kl. 09:00 – 17.00
- Markaðsfræði 101 - Grunnurinn í markaðssetningu
- Markaðssetning á netinu - Helstu leiðir og tækifæri
- Samfélagsmiðlar - Instagram, FB, Snapchat, Tripadvisor, Twitter og fleiri
- Masterclass - Sjálfboðaliði fær vefsíðuklíník
Þriðjudagur 30. apríl
- Hvert fyrirtæki fær einkaráðgjöf (1 klst)
- Farið yfir fyrirliggjandi gögn, bæklinga, vefsíðu, samfélagsmiðla og sölu- og markaðsaðgerðir.
- Forgangsröðun og aðgerðalisti unninn.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á hrafnkell@hfsu.is en skráning á námkeiðið er hér
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar

10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi
Lesa nánar

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Lesa nánar