Til baka í yfirlit
5. nóvember 2014
Málþing um framtíð ferðaþjónustu á Suðurlandi 7. nóvember

Markaðsstofa Suðurlands stendur fyrir málþingi um ferðaþjónustu á Suðurlandi og stefnumótun til framtíðar. Málþingið fer fram föstudaginn 7. nóvember kl. 13:30- 16:30 á Icelandair Hótel Vík. Fjallað verður um dreifingu ferðamanna, lengd dvalar á svæðinu, ásamt hugmyndum um stefnumótun ferðamála á Suðurlandi til framtíðar. Þátttakendur taka virkan þátt í umræðum, sem verða nýttar til stefnumótunar um starfsemi og hlutverk Markaðsstofunnar fyrir ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi.
Athugið að málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir hjartanlega velkomnir. Um kvöldið verður svo haldin uppskeruhátíð ferðaþjónustufyrirtækja á Suðurlandi.
Dagskrá uppskeruhátíðar:
19:30 – Fordrykkur
20:00 – Kvöldverður og skemmtun
Veislustjórn og gamanmál verða í höndum Atla Þórs Albertssonar leikara. Heiðursgestur kvöldsins er ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Jakob Björgvin og Magnús Kjartan munu svo sjá um að spila undir dansi.
Nánari upplýsingar og skráning á netfanginu ragnhildur@south.is
Fleiri fréttir

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Lesa nánar

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Lesa nánar

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar