Til baka í yfirlit
10. júlí 2014
Lagning Ljósveitu að hefjast í Þorlákshöfn

Á næstu dögum mun Míla og TRS á Selfossi hefjast handa við lagningu Ljósveitu í Þorlákshöfn. Settir verða upp götuskápar í hverfum sem svo verða tengdir á ljósleiðara. Framkvæmdunum mun fylgja eitthvað jarðrask í götum, þar sem koma þarf fyrir ljósleiðaralögnum til götuskápa. Sjaldnast er þörf á framkvæmdum hjá endanotendum vegna Ljósveitunnar, því með nútímatækni eru nýttar fyrirliggjandi lagnir til að tengja heimilin við götuskápa sem svo eru tengdir ljósleiðara.
Áætlað er að lagningu til allra heimila í Þorlákshöfn verði lokið í haust og þá verða íbúar Þorlákshafnar komnir meða möguleika á að nálgast háhraðaþjónustu hjá sínum þjónustuaðila. Míla starfar eingöngu á heildsölumarkaði og veitir öðrum fjarskiptafyrirtækjum aðgang að kerfum sínum. Ljósveitan er opið aðgangsnet sem öll fjarskiptafyrirtæki geta haft aðgang að.
Með tilkomu Ljósveitu Mílu fá íbúar möguleika á mjög svo auknum internethraða, allt að 50 Mb/s til heimilis og 25 Mb/s frá heimili. Aukinn hraði býður upp á kjöraðstæður til fjarvinnu, afþreyingar og samskipta.
Upplýsingar um götuskápavæðingu Mílu og tengd heimili má nálgast á heimasíðu Mílu, www.mila.is
Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar