Til baka í yfirlit
28. apríl 2015
Kynningarfundur vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð Suðurlands á Höfn

Fimmtudaginn 30. apríl verða ráðgjafar á vegum SASS með kynningarfund í Nýheimum á Höfn í Hornafirði kl. 12:00. Farið verður yfir ferla við umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Uppbyggingarsjóður Suðurlands tekur við hlutverki Menningarráðs og Vaxtarsamnings Suðurlands og er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands. Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands er
- Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
- Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
- Að styðja við atvinnuskapandi- og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar

10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi
Lesa nánar

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Lesa nánar