Til baka í yfirlit
10. júlí 2014
Íslenski safnadagurinn 13. júlí

Íslenski safnadagurinn er sunnudag 13. júli og söfn landsins bjóða þá gesti sína velkomin til að vekja athygli á fjölbreytilegri starfsemi safna. Á Eyrarbakka leiðir sagnfræðingurinn Eyrún Ingadóttir sögugöngu um slóðir Þórdísar Símonardóttur ljósmóður og hefst gangan við Byggðasafn Árnesinga í Húsinu kl. 14.00. Sérsýningin Ljósan á Bakkanum er í borðstofu Hússins og byggir á bók Eyrúnar Ljósmóðirin. Frítt verður í Byggðasafn Árnesinga og Sjóminjasafnið í tilefni dagsins. Í Húsinu er hægt enn hægt að skoða sýninguna Handriti alla leið heim sem unnin í samvinnu við Árnastofnun. Á Sjóminjasafninu er auk fastra sýninga ljósmyndasýningin Vélbátar frá Eyrarbakka og sumarsýningin Blátt eins og hafið. Á þeirri sýningu ber að líta safn blárra gripa víðs vegar úr Árnessýslu sem voru veiddir uppúr geymslu safnsins. Rjómabúið á Baugsstöðum verður opið líkt og aðrar helgar í júlí og ágúst milli 13-18 og þar er aðgangseyrir 500.- Þuríðarbúð stendur ávallt opin öllum. Safnadagurinn ætti að vera ferðalöngum og heimafólki hvatning til að gefa söfnum sérstakan gaum.
Fleiri fréttir

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Lesa nánar

10. nóvember 2026
Fyrsta Nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt á Uppsprettu: Mikill kraftur í sunnlensku atvinnulífi
Lesa nánar

5. nóvember 2026
Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? Málþing 10.nóvember
Lesa nánar

3. nóvember 2026
Ársþing SASS 2026: Fjölmargar ályktanir samþykktar um eflingu landshlutans
Lesa nánar