Til baka í yfirlit
24. júní 2009
,,Blóm í bæ" í Hveragerði um helgina, 26. - 28. júní
Garðyrkju- og blómasýningin "Blóm í bæ" verður haldin í Hveragerði dagana 26. - 28. júní 2009. Þá munu Hvergerðingar bjóða landsmönnum öllum til veglegrar veislu í samvinnu við öll fagfélög græna geirans á Íslandi. Er þetta í fyrsta sinn sem haldin er sameiginleg sýning allra þessara aðila. Þrátt fyrir að um frumraun hér á landi sé að ræða eru slíkar sýningar vel þekktar erlendis og laða þær ævinlega að mikinn mannfjölda.
Dagskrá helgarinnar er afar fjölbreytt og metnaðarfull en nánari upplýsingar um dagskrána má finna á heimasíðu bæjarins www.hveragerdi.is. Ráðstefnan „Íslensk garðlist“ markar upphaf sýningarinnar föstudaginn 26. júní. Í kjölfar ráðstefnunnar hefst sjálft sýningin síðan með setningarathöfn kl. 16 og þar með hefst viðburðarrík helgi í blómabænum. Allt sem tengist garðyrkju, umhverfismálum, íslenskri framleiðslu og handverki verður á sýningunni. Sýningar og ýmsar keppnir verða allan sýningartímann ásamt líflegri markaðsstemning í sölutjöldum.
Smágarðasamkeppni, lengsta blómaskreyting á Íslandi, þúsundir afskorinna blóma á risablómasýningu ásamt sýningu á íslenskum matjurtum, grænmeti og kryddjurtum.
Þá verður sett upp sögusýning íslenskrar garðyrkju þar sem vinnuháttum fyrri tíma verða gerð skil.
Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar