Til baka í yfirlit
1. febrúar 2016
Bæjarráð Árborgar ályktar um vetrarþjónustu

Á fundi bæjarráðs Árborgar fimmtudaginn 28. janúar sl. var eftirfarandi bókun samþykkt: Bæjarráð Árborgar fer þess á leit við Vegamálastjóra að Vegagerðin breyti skilgreiningu á vetrarþjónustu fyrir Suðurstrandarveg á þann hátt að þjónusta á veginum verði færð upp um þjónustuflokk. Nú fellur Suðurstrandarvegur í þjónustuflokk 4, líkt og vegir þar sem meðalumferð nemur innan við 100 bílum VDU (vetrardagsumferð) og fær vetrarþjónustu 1-2 daga í viku, en samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar mældist umferð um Suðurstrandarveg þegar árið 2014 172 VDU við Festarfjall og 142 VDU við Selvog og hefði því þátt að breyta þjónustu við veginn eigi síðar en síðasta haust. Miðað við umferð ætti Suðurstrandarvegur að vera í þjónustuflokki 3 og vera með vetrarþjónustu 5 daga vikunnar. Vegna tíðra lokana Suðurlandsvegar á Hellisheiði og í Þrengslum er mjög brýnt að hafa möguleika á að beina umferð um Suðurstrandarveg. Lokanir á Suðurlandsvegi hafa mikil og neikvæð áhrif á íbúa og fyrirtæki á svæðinu og nauðsynlegt að hafa aðra leið færa á milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins/Suðurnesja.
Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar