Til baka í yfirlit
9. nóvember 2007
Ársþing SASS 2007 tókst vel
Ársþing SASS var haldið 1. og 2. nóvember sl. á Kirkjubæjarklaustri Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar. Á þinginu var Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýrdalshrepps kosinn nýr formaður SASS í stað Gunnars Þorgeirssonar Grímsnes- og Grafningshreppi sem gegnt hefur starfinu undanfarin 4 ár. Þingið samþykkti fjölmargar ályktanir sem hægt er að nálgast á síðunni hér til vinstri, ásamt öðru efni frá ársþinginu. Á aðalfundum SASS og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands var samþykkt að sameina SASS og AÞS og verkefni sem AÞS hefur haft með höndum verði sinnt innan vébanda SASS. Haldnir verða aukaðalfundir á næstu vikum þar sem gengið verður formlega frá sameiningunni.


Deila frétt
Fleiri fréttir

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Lesa nánar

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Lesa nánar

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Lesa nánar