IS

Back to overview

2. september 2026

Vettvangsrannsóknum vegna Eyjaganga lokið

Öllum vettvangsrannsóknum vegna mögulegra jarðganga milli Vestmannaeyja og Suðurlands er nú formlega lokið eftir að kjarnaborun kláraðist á Landeyjasandi á dögunum. Borunin náði niður á 291,5 metra dýpi og skilaði mikilvægum upplýsingum um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina suðvestan við Kross.

Fram undan er spennandi vetur þar sem sérfræðingar munu vinna úr þessum gögnum. Í kjölfarið mun fara fram heildstætt fýsileika- og kostnaðarmat sem varpar ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur þessa mikilvæga samgönguverkefnis fyrir Suðurland. Reiknað er með að niðurstöður liggi fyrir í lok ársins.

Nánar á eyjagong.is.