Back to overview
27. ágúst 2019
Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.
Markmið Uppbyggingarsjóðs eru að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi, efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi og að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, einnig má hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is.
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að sækja um styrk með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einkakennitölu verkefnastjóra.
Starfandi fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að sækja um styrk vegna nýsköpunarverkefna.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér.
Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 8. október 2019





More articles

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more

3. júlí 2026
Pistill framkvæmdastjóra: Fræin farin að kíkja upp úr moldinni
Read more

3. júlí 2026
Nýr vefur SASS tekinn í notkun
Read more