Back to overview
4. febrúar 2014
Unglingurinn - Vík í Mýrdal 22. febrúar, Vestmannaeyjum 24. febrúar, Höfn 2. mars, Selfossi 16. mars og Aratungu 22. mars.
Unglingurinn er frábært nýtt leikverk sem er samið og leikið af unglingum. Sýningin hefur slegið í gegn og Menningarþátturinn Djöflaeyjan kaus hana m.a sem eina af áhugaverðustu sýningum ársins og sagðist ekki hafa skemmt sér svona vel í langan tíma.UNGLINGURINN er drepfyndið leikrit en á sama tíma mjög einlægt og tekur á öllum helstu málum sem brenna á unglingum í dag. Þó að verkið sé um unglinga er það ekki síður skemmtilegt fyrir foreldra og systkini.
Þetta er tilvalin samverustund þar sem hláturtaugarnar eru kitlaðar og foreldrar fá smá fræðslu í unglingamálum!
Og ekki spillir verðið því að Gaflaraleikhúsið og Menntalest Suðurlands (SASS) bjóða miðann á aðeins 1.750 kr ef að keypt er viku fyrir sýningu eða fyrr. (almennt miðaverð er 2.500 kr)
More articles

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Read more

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more