IS

Back to overview

16. apríl 2026

Þórður Freyr kveður SASS eftir áratug

Þórður Freyr kveður SASS eftir áratug

Þórður Freyr Sigurðsson hefur látið af störfum hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eftir að hafa starfað hjá samtökunum í rúman áratug. Þórður hóf störf hjá SASS árið 2013 og hefur lengst af gegnt stöðu sviðsstjóra þróunarsviðs.

Á starfsferli sínum hjá samtökunum bar Þórður ábyrgð á málefnum byggðaþróunar og gegndi lykilhlutverki í mótun margra af mikilvægustu þróunarverkefnum Suðurlands. Hann var verkefnisstjóri Sóknaráætlunar Suðurlands og Uppbyggingarsjóðs Suðurlands frá upphafi og hafði yfirumsjón með ráðgjöf, stefnumótun og þróunarstarfi samtakanna.

Þórður kom á núverandi samstarfi um byggðaþróun við samstarfsstofnanir, auk þess sem hann leiddi innleiðingu á hlutverki byggðaþróunarfulltrúa á Suðurlandi – kerfi sem færði ráðgjöf og stuðning samtakanna nær íbúum landshlutans og hefur verið dýrmætt fyrir vöxt og viðgang svæðisins.

Þórður hefur setið í ýmsum stjórnum, nefndum og ráðum á vegum samtakanna og lagt þar af mörkum á sviði atvinnu- og byggðamála. Með starfslokum hans hverfur frá samtökunum víðtæk reynsla og þekking sem hefur haft mótandi áhrif á starfsemi SASS á undanförnum árum.

Þakkir frá stjórn

Stjórn SASS vill færa Þórði einlægar þakkir fyrir mikilvægt framlag hans til samtakanna og byggðaþróunar á Suðurlandi öllu. Starf hans hefur einkennst af fagmennsku og farsælu samstarfi á liðnum árum og óskar stjórnin honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.