Back to overview
29. nóvember 2013
Skaftárhreppur til framtíðar
Samantekt og næstu skref
Samantekt um skilaboð íbúaþings í Skaftárhreppi, sem haldið var í október, liggur nú fyrir og má finna hana hér. Verkefnisstjórn hefur fundað og farið yfir þau mál sem rædd voru á þinginu og velt upp leiðum til að fylgja hinum ýmsu málum eftir. Þar er til skoðunar hvað aðstandendur verkefnisins, Byggðastofnun, Skaftárhreppur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, geta gert en auk þess snúa mörg verkefni að heimamönnum og frumkvöðlum. Verkefnisstjórn mun jafnframt koma niðurstöðum á framfæri við stjórnvöld, stofnanir og aðra aðila eftir því sem við á.
Næsta skref í verkefninu er að haldinn verður opinn eftirfylgnifundur á Kirkjubæjarklaustri, þar sem farið verður yfir stöðu mála. Fundurinn verður haldinn eftir áramót og verður tilkynnt um dagsetningu þegar nær dregur.
More articles

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more