Back to overview
17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir

Ríkisstjórn Íslands fundaði með fulltrúum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps í Nýheimum á Höfn fimmtudaginn 13. ágúst.
Tæpu ári eftir ársþing SASS á Kirkjubæjarklaustri hefur góður árangur náðst í eftirfylgni hluta ályktana ársþingsins. Þar ber hæst fullfjármögnuð uppbygging Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) á Selfossi, dýpkun Grynnslanna við Hornafjörð og aðgerðir til að tryggja vatnsöryggi í Vestmannaeyjum sem þó eru í uppnámi vegna tjóns sem varð á vatnslögninni.
Uppbygging HSU á Selfossi tryggð
Eitt af forgangsmálum SASS hefur verið uppbygging Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Ársþing SASS skoraði á ríkisvaldið að setja þá uppbyggingu, endurbætur og viðhald í forgang. Ríkisvaldið hefur nú samþykkt umfangsmikla uppbyggingu HSU á Selfossi. Þetta felur í sér nýja viðbyggingu, endurbætur á eldra húsnæði og, það sem mikilvægast er, að fyrsti áfangi framkvæmda er að fullu fjármagnaður.

Anton Kári Halldórsson formaður SASS og Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri SASS voru fulltrúar SASS á fundinum
Varanleg lausn við Grynnslin tryggir atvinnu
Fulltrúar SASS og Hornafjarðar fögnuðu því á fundinum að kröfu ársþingsins um varanlegt fjármagn til dýpkunar Grynnslanna hafi verið mætt að fullu. Þriggja ára samningur er nú í gildi fyrir árin 2026-2028. Örugg innsigling á Höfn er algjör forsenda uppsjávarveiða á svæðinu, en alls var 58 þúsund tonnum landað þar á síðasta ári. Jafnframt hafa verið stigin mikilvæg skref til að leysa vatnsvanda Vestmannaeyinga með lagningu nýrrar vatnslagnar, verkefni sem hefði getað aukið vatnsöryggi Eyjamanna til muna. Staðan er þó sú að tjón varð á lögninni við útlagningu hennar á dögunum og framhaldið óljóst.
Vatnajökulsþjóðgarður þarf að styðja við byggðaþróun
Málefni Vatnajökulsþjóðgarðs voru fyrirferðarmikil á fundinum. Sveitarstjórnarfólk og SASS bentu á að lög um þjóðgarðinn snúast ekki aðeins um náttúruvernd heldur einnig um byggðaþróun. Kallað var eftir því að hagsmunir nærsamfélagsins verði hafðir að leiðarljósi við uppbyggingu við Jökulsárlón. Þá var bent á brýna þörf á uppbyggingu meginstarfsstöðva; þjónustumiðstöðin í Skaftafelli er komin að þolmörkum og hefur lítið breyst frá 1974, og á Höfn er enn engin þjónustumiðstöð.
Þessar áskoranir ríma vel við áhyggjur SASS af því að stjórnvöld hafi dregið lappirnar í stuðningi við byggðaþróun og áfangastaðastofur. Nýir samningar um Sóknaráætlun Suðurlands fela fremur í sér niðurskurð en þá hækkun sem ársþingið kallaði eftir til að mæta áskorunum tengdum atvinnu og ferðaþjónustu.

Anton Kári formaður SASS fer yfir helstu áherslur landshlutans
Menntun, heilbrigðisþjónusta, öryggi og fjarskipti í forgangi
Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að hlúa sameiginlega að Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) og Fjallaskóla Íslands. SASS hefur ítrekað kallað eftir aðgerðum frá ríkinu til að bæta aðgengi að háskólanámi óháð búsetu og efla iðnnám, sem hefur því miður gengið of hægt á landsvísu. Til að mynda hefur ekkert gerst í tímasettri stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurlands líkt og SASS kallaði eftir á síðasta ársfundi samtakanna.
Öryggismál voru einnig ofarlega á baugi. Unnið er að stofnun sameiginlegrar björgunarmiðstöðvar viðbragðsaðila í Öræfum. Til að tryggja öryggi íbúa og ferðamanna er þó algjör forsenda að ráðist verði í tafarlausar úrbætur á fjarskiptasambandi á svæðinu, þar sem víða er enn ekkert farsímasamband. Mikið var rætt um þolmörk heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni og hvernig þjónustuþörfin er reiknuð. Þar sem fjöldi ferðamanna á Suðurlandi er oft langt umfram íbúafjölda, dugir ekki lengur að miða þjónustuþörf eingöngu við lögheimili. Til að fá rétta mynd af álagi á heilbrigðiskerfið verður að taka mið af gistináttatölum til viðbótar við íbúafjölda á hverjum tíma.
Fundurinn með ríkisstjórninni var afar gagnlegur og undirstrikar mikilvægi þess að eiga milliliðalaust samtal við stjórnvöld. SASS og sveitarfélögin á Suðurlandi fagna þeim sigrum sem unnist hafa í stórum innviðaverkefnum en munu halda áfram að beita sér af krafti fyrir því að stjórnvöld fylgi eftir brýnum hagsmunamálum tengdum atvinnulífi, menntun og þjónustu í landshlutanum.

Fulltrúar Hornafjarðar, Skaftárhrepps og SASS ásamt ríkisstjórn Íslands funduður á Höfn
More articles

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Read more

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more