Back to overview
18. maí 2026
Samkvæmt greiningu Markaðsstofu Suðurlands skilar ferðaþjónustan milljörðum til sveitarfélaga á Suðurlandi

Ferðaþjónustan er ein mikilvægasta auðlind Suðurlands og hefur vöxturinn í greininni verið gríðarlegur á síðustu árum. Markaðsstofa Suðurlands hefur nú birt ítarlega greiningu á þróun og efnahagslegum áhrifum greinarinnar á sunnlensk sveitarfélög. Við gerð samantektarinnar nýtti markaðsstofan gögn sem Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa tekið saman úr tölum Hagstofu Íslands til að varpa ljósi á verðmætasköpunina í hverju sveitarfélagi fyrir sig.
Niðurstöðurnar sýna að gistinætur á Suðurlandi fóru úr tæpum 530 þúsundum árið 2010 í rúmar 2,7 milljónir árið 2024. Samhliða þessum vexti hafa tekjur sveitarfélaga aukist verulega, en áætlaðar beinar skatttekjur sunnlenskra sveitarfélaga af ferðaþjónustu námu rúmum fimm milljörðum króna árið 2024. Greiningin er mikilvægt tæki fyrir sveitarfélög við stefnumótun og ákvarðanatöku, enda brýnt að hluti þeirra verðmæta sem skapast renni aftur í innviði sem bæta lífsgæði íbúa, upplifun gesta og vernda náttúru landsins.
Hér er hægt er að kynna sér greininguna í heild sinni á vef Markaðsstofu Suðurlands
More articles

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more