Back to overview
3. júlí 2026
Pistill framkvæmdastjóra: Fræin farin að kíkja upp úr moldinni

Eftir Ingunni Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SASS.
Fyrir rétt rúmu ári tók ég við keflinu hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga eftir að hafa verið ráðin framkvæmdastjóri samtakanna. Ég fékk það verkefni í hendur að rýna samtökin innan frá, yfirfara verkferla, endurmeta stefnuna og blása lífi í tilganginn. Ég hófst strax handa, enda finnst mér fátt skemmtilegra en að sökkva mér í nýjar áskoranir.
Þessi nú bráðum 60 ára gömlu samtök hafa þroskast og þróast með árunum. Án þess að hér sé ætlunin að rekja sögu SASS – þótt það sé verðugt verkefni og verði klárlega gert á öðrum stað – þá má segja að í dag sé hlutverk þeirra enn mikilvægara en nokkru sinni, enda þjónusta og ábyrgð sveitarfélaga mikil og hagsmunabarátta þeirra þar af leiðandi einnig.
Til þess að samtökin standi undir þeim verkefnum og væntingum sem sveitarfélögin á Suðurlandi hafa til þeirra er nauðsynlegt að SASS sem samtök tengi við tilgang sinn. Því var mitt fyrsta verkefni að eiga samtal við fólkið sem starfar hjá og með SASS til þess að komast að því hvar við værum stödd, hvert við vildum fara og hvernig við ætluðum að komast þangað.
Töfrar samvinnunnar
Eitt af því fyrsta sem ég komst að var að hvaða leið sem yrði fyrir valinu, þá kæmumst við ekkert áfram ef við færum hana ekki saman. Og ef við ætluðum að fara hana saman þá yrðum við líka að geta talað saman og unnið saman, enda fátt jafn mikilvægt í svona vinnu. Við hófum vegferðina á að fá til okkar teymisþjálfara til þess að kenna okkur aðferðir við að vinna saman sem teymi. Við útbjuggum okkur samskiptasáttmála og við festum okkur stað og stund fyrir fundi til þess að ræða „innri mál“. Það eru ótrúlegir töfrar sem eiga sér stað þegar starfsfólk getur deilt því sem hvílir á því hverju sinni í traustu umhverfi sem tekur við því sem lagt er fram. Þar sem traust er, líður fólki vel og vinnan verður betri, léttari og skemmtilegri.
Sýnileg uppskera
Við fengum nýja og öfluga liðsfélaga sem komu inn með eldmóð og ferskan blæ og uppbyggingin rúllaði af stað. Nýir ferlar urðu til, betri yfirsýn og meiri samskipti við eigendur, samstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila fylltu okkur bjartsýni um að við værum á réttri leið. Nú ári síðar sé ég fræin sem við sáðum í fyrra kíkja upp úr moldinni. Og gleðin, maður minn. Fyrir áhugagarðyrkjumanneskju eins og mig er fátt fallegra en sú sýn, hvort sem hún er huglæg eða áþreifanleg.
Að lokum vil ég segja þetta: Ég er óskaplega þakklát þeim árangri sem við hjá SASS höfum náð á þessu fyrsta ári mínu, árangri sem ég upplifi fyrst og fremst í líðan starfsmanna og stolti okkar yfir að starfa hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.
More articles

3. júlí 2026
Nýr vefur SASS tekinn í notkun
Read more

2. júlí 2026
Átta milljónir króna til að efla nýsköpun í sunnlensku atvinnulífi
Read more

26. júní 2026
Fyrsta styrkveiting úr Hörpusjóðnum: „Voices of Vík“ hlýtur eina milljón króna
Read more

22. júní 2026
Síðasti stjórnarfundur SASS haldinn í Eyjum og aðalfundur framundan
Read more