Back to overview
3. október 2023
Byggðaþróunarfulltrúar á vinnufundi í Skálholti

Byggðaþróunarfulltrúar á Suðurlandi hittust á dögunum til vinnufundar ásamt starfsmönnum SASS. Var fundað í Skálholti með það að markmiði að styrkja samstarfið, efla tengsl og rýna hlutverk byggðaþróunarfulltrúa með sérstakri áherslu á leiðtogafærni og ráðgjafarþjónustu.
Til liðs við hópinn var leiðtogaþjálfarinn, lögfræðingurinn og viðskiptafræðingurinn Elmar Hallgrím Hallgrímsson sem leiddi hópinn í gegnum þjálfun í leiðtogafærni. Þegar hlutverk byggðaþróunarfulltrúa eru rýnd, sem snúa meðal annars að því hvetja fólk áfram til góðra verka og að tengja saman einstaklinga, fyrirtæki og verkefni, er ljóst að leiðtogafærni getur komið sér afar vel. Elmar mun fylgja þjálfuninni eftir með því að koma inn á vikulega fundi byggðaþróunarfulltrúa í nokkur skipti.
Í lok dags fékk hópurinn að kynnast Uppsveitum Árnessýslu örlítið betur. Hófst það með áhugaverðri kynningu um Skálholt, en svæðið er svo sannarlega áhugavert. Með sanni má segja að saga Skálholts hafi mikið menningarlegt gildi og sérlega gaman að heyra sögu staðarins allt aftur til fornaldar. Því næst var haldið í Friðheima þar sem einn stofnanda og eigenda Friðheima, Knútur Rafn Ármann, tók hópinn í afar áhugaverða kynningu um fyrirtækið, upphaf þess og framgang.
Alls eru starfandi byggðaþróunarfulltrúar á sex atvinnusóknarsvæðum af sjö á Suðurlandi. Hvetjum við alla til að kynna sér nánar þá þjónustu sem byggðaþróunarfulltrúar hafa upp á að bjóða, m.a. í formi ráðgjafarþjónustu.
Sjá nánar hér; www.sass.is/radgjof.
Frá vinstri: Ásborg Arnþórsdóttir, Kristín Vala Þrastardóttir, Ingunn Jónsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Elísabet Björney Lárusdóttir, Harpa Elín Haraldsdóttir, Stefán Friðrik Friðriksson, Lína Björg Tryggvadóttir, Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir, Þórður Freyr Sigurðsson og Hörður Baldvinsson.



More articles

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more