Back to overview
14. ágúst 2024
Beint frá býli dagurinn á tveimur stöðum á Suðurlandi, sunnudaginn 18. ágúst

Beint frá býli dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í fyrra, á sex lögbýlum hringinn í kringum landið, einu í hverjum landshluta.
Tilefnið var 15 ára afmæli félagsins, en tilgangurinn að kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum og byggja upp tengsl milli þeirra.
Á býli gestgjafanna söfnuðust saman aðrir framleiðendur af lögbýlum úr landshlutanum til að kynna og selja sínar vörur. Ýmis afþreying var í boði til viðbótar við það sem býlin sjálf höfðu upp á að bjóða og var dagurinn sérlega barnvænn.
Afar góð mæting var í öllum landshlutum og almennt mikil ánægja. Skipuleggjendur áætla að 3-4000 manns hafi lagt leið sína á bæina samanlagt. Því var ákveðið að gera daginn að árlegum viðburði.
Fleiri smáframleiðendur með í ár
Beint frá býli dagurinn verður aftur haldinn síðasta helgidag fyrir skólabyrjun sem í ár er sunnudagurinn 18. ágúst.
Öllum þeim ríflega 200 framleiðendum sem eru í Samtökum smáframleiðenda matvæla sem Beint frá býli er aðildarfélag að, verður boðið að taka þátt, en ríflega helmingur þeirra er á lögbýlum.
Gestgjöfunum hefur verið fjölgað úr sex í sjö á landinu öllu. Í ár verða tveir viðburðir á Suðurlandi. Annar svegar Háhóll geitabú á Hornafirði og hins vegar Hreppamjólk í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
SASS hvetur Sunnlendinga til að fjölmenna á viðburðina, nánari upplýsingar má finna með því að smella á hlekkina hér að ofan.
Einnig má finna nánari upplýsingar á vef Beint frá býli: https://www.beintfrabyli.is.

More articles

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Read more

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more