Back to overview
17. apríl 2012
Ályktun stjórnar SASS um rammaáætlun
Á fundi stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga , sem haldinn var 13. apríl sl., var fjallað um þá fyrirætlun stjórnvalda að leggja fram þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem ekki er í samræmi við niðurstöður verkefnisstjórnar rammaáætlunar.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða:
,,Stjórn SASS lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá stefnu sem ríkisstjórn hefur tekið varðandi þingsályktunartillögu um rammaáætlun en samkvæmt henni verður gengið á svig við niðurstöður þeirra vönduðu þverfaglegu vinnu sem unnin var á vegum verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Stjórn SASS skorar því á Alþingi að farið verði að tillögum verkefnisstjórnar um þá virkjunarkosti sem fara eigi í nýtingarflokk. Það á ekki síst við um virkjanir í neðri hluta Þjórsár sem koma hvað best út af mögulegum virkjunarkostum bæði hvað varðar umhverfisáhrif og þjóðhagslega hagkvæmni og því brýnt að heimila Landsvirkjun að ljúka undirbúningsvinnu til að geta hafið framkvæmdir. Fyrir sunnlendinga er um mikilvægar framkvæmdir að ræða sem varða nauðsynlega uppbyggingu og eflingu atvinnulífs á Suðurlandi.“
Share article
More articles

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more

9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Read more