IS

Back to overview

16. desember 2008

Ályktun stjórnar SASS um byggðaáætlun 2010 - 2013

Á síðasta stjórnarfundi SASS, sem haldinn var 12. desember sl., var eftirfarandi ályktun samþykkt um  byggðaáætlun sem vinna er að hefjast við:

,,Stjórn SASS telur mjög brýnt vegna þeirrar vinnu sem er framundan við byggðaáætlun 2010 – 2013 að höfð verði náin samvinna við atvinnuþróunarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga um mótun áætlunarinnar. Tryggt verði að forræði og ábyrgð uppbyggingar verði í höndum heimamanna. Jafnframt verði þess gætt að samþætta byggðaáætlun við svæðisskipulag sveitarfélaga, samgönguáætlun, rammaáætlun um ... auðlindanýtingu, áætlanir um þjónustuuppbyggingu ráðuneyta og áætlanir um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.”


Um önnur umfjöllunarmál má sjá nánar um í 420. fundargerð sem er að finna hér á síðunni.