Til baka í yfirlit
14. janúar 2025
Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri lætur af störfum hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)

Stjórn SASS og Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá samtökunum. Bjarni, sem hefur verið framkvæmdastjóri SASS í tíu ár, hefur þegar látið af störfum.
„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að byggja upp samtök sveitarfélaga á Suðurlandi sem sinna mikilvægu hlutverki í byggðaþróun. Ég er stoltur af þeim árangri sem samtökin hafa náð í þessum grósku- og kraftmikla landshluta. Framtíðin er svo sannarlega björt fyrir Sunnlendinga og tækifærin fjölbreytileg í atvinnumálum, listum og menningu,“ segir Bjarni. „Góður árangur við að gæta hagsmuna sveitarfélaga og íbúa Suðurlands, sem hefur stuðlað að jákvæðri byggðaþróun, hefði ekki náðst nema með samhentu átaki allra. Ég þakka starfsfólki og stjórnarmönnum SASS, kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, íbúum og forráðamönnum fyrirtækja fyrir samstarfið á liðnum árum.“
„Stjórn SASS þakkar Bjarna Guðmundssyni fyrir framlag hans við að styrkja stoðir atvinnu- og mannlífs á Suðurlandi og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Anton Kári Halldórsson, stjórnarformaður SASS.
Fleiri fréttir

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar