8. nóvember 2016
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum


AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensk sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 20:00, 1. desember 2016. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun.is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur. Vakin er athygli á því að umsóknum þarf bæði að skila rafrænt og bréflega.



