fbpx

Menntaverðlaun Suðurlands voru afhent í sextánda sinn fimmtudaginn 15. febrúar sl. á árlegum hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands. Athöfnin fór fram í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Alls bárust tíu tilnefningar til Menntaverðlaunanna fyrir árið 2023.

Að þessu sinni var það Víkurskóli og Katla jarðvangur sem hlutu verðlaunin fyrir samstarfsverkefni í strandlínurannsóknum í Víkurfjöru.

Samstarfsverkefni Víkurskóla og Kötlu jarðvangs hófst árið 2021 um er að ræða strandlínurannsókn í Víkurfjöru. Verkefnið hefur verið samstarfsverkefni Jóhannesar Marteins Jóhannessonar jarðfræðings hjá Kötlu jarðvangi og nemenda Víkurskóla,

Á myndinni eru frá vinstri, forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson, Elín Einarsdóttir skólastjóri Víkurskóla og Jóhannes Marteinn Jóhannesson jarðfræðingur hjá Kötlu jarðvangi.

 Framkvæmdar hafa verið mælingar á nokkrum sniðum Víkurfjöru og Jóhannes hefur komið með fræðslu til nemenda þar sem niðurstöður mælinganna hafa verið útskýrðar. Verkefnið eflir þekkingu nemenda á nærumhverfi sínu og vísindalegri rannsóknaraðferð. Nemendur fá fræðslu um þá þætti sem hafa áhrif á færslu strandlínunnar s.s. veður, hafstrauma og vindáttir. Fræðslan á nærumhverfi Víkur er enn fremur mjög þýðingarmikil í ljósi lýðfræðilegra breytinga sem hafa orðið á samfélaginu í Mýrdalshreppi síðustu árin.

Var það Brynhildur Jónsdóttir stjórnarkona SASS sem tilkynnti niðurstöður  úthlutunarnefndar. Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin.

Við óskum Víkurskóla og Kötlu jarðvangi til hamingju með verðlaunin.

Allar tilnefningar til Menntaverðlauna Suðurlands 2023:

  1. Víkurskóli og Katla jarðvangur
  2. Eydís Hrönn Tómasdóttir kennari við Grunnskólann á Hellu
  3. Þollóween-nefndin í Þorlákshöfn
  4. Barnakór Hvolsskóla
  5. Leikskólinn Aldan í Rangárþingi
  6. Kennarateymið í Valsmiðjum á miðstigi Stekkjaskóla
  7. Halla Sigríður Bjarnadóttir kennari við Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
  8. Matthildur E. Vilhjálmsdóttir sérkennari við leikskólann Leikholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
  9. Stekkur til framtíðar – Að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla, þróunarverkefni starfsmanna Stekkjaskóla í Árborg
  10. Emilía Lilja Rakelar Gilbertsdóttir, Sigríður Þorbjörnsdóttir og leikskóladeild Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi