fbpx

Sóknaráætlun Suðurlands er sértæk byggðaáætlun fyrir Suðurland og jafnframt samheiti yfir samning landshlutasamtakanna við hið opinbera um fjármögnun sóknaráætlunar og Uppbyggingarsjóðs Suðurlands. Sóknaráætlun Suðurlands byggir á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir landshluta nr. 69/2015.

Sóknaráætlanir liggja fyrir í öllum átta landshlutunum og gildir nýjasta áætlunin til ársins 2024. Sóknaráætlanirnar fela í sér stöðumat, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir og voru þær unnar í víðtæku samráði heimamanna. Áhersluverkefni og verkefni styrkt af uppbyggingarsjóðum taka mið af áherslum sóknaráætlunar í hverjum landshluta.

 

Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024

Sóknaráætlun má nálgast hér (.pdf)