Ársþing og aðalfundur SASS
Aðalfundir og ársþing SASS
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru vettvangur samstarfs og stefnumótunar fyrir sveitarfélögin á Suðurlandi. Æðsta vald samtakanna er í höndum þingfulltrúa aðildarsveitarfélaganna á tveimur reglulegum fundum samtakanna ár hvert.
Aðalfundur SASS (Vorfundur)
Aðalfundur SASS fer með æðsta vald samtakanna ásamt haustfundi. Á fundinum koma saman fulltrúar tilnefndir af sveitarstjórnum á Suðurlandi, þar sem fjöldi fulltrúa hvers sveitarfélags ræðst af íbúafjölda.
Fundurinn er haldinn að vori til ár hvert og skal haldinn eigi síðar en 31. maí ár hvert nema á kosningaári sveitarstjórna en þá skal fundurinn haldinn eigi síðar en 10. júlí til að tryggja að nýjar sveitarstjórnir nái að tilnefna sína fulltrúa. Vorfundurinn er að jafnaði fjarfundur nema stjórn ákveði annað.
Á meðal helstu lögbundinna verkefna aðalfundarins er að fara yfir og samþykkja ársreikning síðasta rekstrarárs ásamt skýrslu stjórnar um starfsemi liðins árs og málayfirliti samtakanna. Einnig er kosið í níu manna stjórn SASS, ráð og nefndir.
Stjórnin hefur á að skipa fulltrúum frá öllum svæðum Suðurlands (Árborg, Hornafirði, Vestmannaeyjum, Hveragerði, Ölfusi, Uppsveitum Árnessýslu og Flóa, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu). Að lokum tekur fundurinn ákvörðun um forgangsröðun verkefna og skipar sérstakar milliþinganefndir sem starfa að afmörkuðum málaflokkum fram á haust.
Ársþing SASS (Haustfundur)
Haustfundur samtakanna er jafnframt Ársþing SASS og er einn mikilvægasti vettvangur ársins fyrir umræður og stefnumótun sunnlensks sveitarstjórnarfólks.
Þingið er haldið á haustmánuðum ár hvert og skal því lokið eigi síðar en 31. október. Ólíkt vorfundinum er ársþingið ávallt staðfundur og fer fram á mismunandi stöðum í landshlutanum hverju sinni.
Meginhlutverk ársþingsins snýr að víðtækri umræðu og stefnumótun um framtíðina, þróun innviða og öflugt atvinnulíf á Suðurlandi öllu. Á þinginu er fjárhagsáætlun samþykkt fyrir komandi rekstrarár, úrvinnsla og endanleg afgreiðsla á skýrslum og ályktunum frá milliþinganefndum og starfsnefndum samtakanna sem skipaðar voru um vorið. Gert er ráð fyrir rými á ársþinginu til að halda aðalfundi annarra mikilvægra stoðstofnana í landshlutanum, svo sem Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.