EN

Hlutverk SASS

Megin starfsemi SASS felst í hagsmunagæslu fyrir íbúa og sveitarfélög á Suðurlandi. Önnur hlutverk tengjast m.a. samningum og framlögum frá hinu opinbera. Á grundvelli slíkra samninga veitir SASS m.a. ráðgjöf, styrki og aðra þjónustu til handa atvinnu- og menningarlífi á Suðurlandi. SASS vinnur einnig að ýmsum greiningar- og þróunarverkefnum til hagsbóta fyrir landshlutann á sviði byggðaþróunar og heldur utan um rekstur ákveðinna sérverkefna.

Auk þess sinnir SASS skrifstofuþjónustu fyrir byggðasamlög og samstarfsverkefni, í samræmi við samþykktir SASS um stuðning við starf annarra byggðasamlaga, eftir óskum þeirra hverju sinni.

15

Fjöldi sveitarfélaga á Suðurlandi

30.966

Stærð Suðurlands (km²)

36.570

Íbúar á Suðurlandi árið 2025

Stjórn SASS 2024-2026

Formaður: Anton Kári Halldórsson, Rangárþing eystra
Varaformaður: Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, Sveitarfélagið Ölfus

  • Gauti Árnason, Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Sveinn Hreiðar Jensson, Skaftárhreppur
  • Anton Kári Halldórsson, Rangárþing eystra
  • Eyþór Harðarson, Vestmannaeyjabæ
  • Haraldur Þór Jónsson, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
  • Sveinn Ægir Birgisson, Sveitarfélaginu Árborg
  • Matthías Bjarnason, Sveitarfélaginu Árborg
  • María Rún Þorsteinsdóttur, Hveragerðisbær
  • Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, Sveitarfélaginu Ölfus

Varamenn

  • Eyrún Fríða Árnadóttir, Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Björn Þór Ólafsson, Mýrdalshreppur
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Rangárþing ytra
  • Aníta Jóhannsdóttir, Vestmannaeyjabær
  • Jón Bjarnason, Hrunamannahreppur
  • Brynhildur Jónsdóttir, Sveitarfélagið Árborg
  • Ellý Tómasdóttir, Sveitarfélagið Árborg
  • Birgitta Ragnarsdóttir, Hveragerðisbær
  • Erla Sif Markúsdóttir, Sveitarfélagið Ölfus