Back to overview
4. september 2013
Vinnustofa í Wordpress vefsíðugerð
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða upp á vinnustofu í Wordpress vefsíðugerð.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa hug á að koma upp og viðhalda einfaldri Wordpress vefsíðu.
Aðaláherslan er lögð á að þátttakendur geti eftir námskeiðið sinnt vefsíðu sinni sjálfir, sett inn efni og myndir. Einnig verður farið yfir hvernig nýta má vefsíðuna í markaðssetningu á Netinu með því að tengja síðuna við leitarvélar. Þá verða viðbætur skoðaðar (e.plugins), s.s. fyrir bókanakerfi. Sérstaklega hentugt fyrir ferðaþjónustuaðila og aðila í smærri rekstri. Námskeiðið hentar einnig þeim sem eru nú þegar með vefsíðu í Wordpress kerfinu og vilja ná betri tökum á að sinna síðunni. Námskeiðið verður haldið á Höfn í Hornafirði, Selfossi, í Vestmannaeyjum og Vík í Mýrdal. Innritun hjá Fræðslunetinu í síma 560 2030 eða hér >>> Skráning
Lengd: 8 klst. hvor dagur.
Fjöldi: Lágmark 6 manns, hámark 15 manns á hverjum stað.
Námskeiðsgjald: 6.990 kr.
Hvenær: Höfn, 29. - 30.október, Vestmannaeyjar: 4. - 5. nóvember, Vík: 6. - 7. nóvember, Selfoss: 12 .- 13. nóvember, kl. 10 - 17.
Kennari: Elmar Gunnarsson.
Share article
More articles

9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Read more

8. september 2026
Ný tækifæri fyrir sunnlenska frumkvöðla: Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur í IceBAN
Read more

7. september 2026
SASS hafnar skattahækkun á baðlón: Ógnar 400 heilsársstörfum á Suðurlandi
Read more

4. september 2026
Opnað fyrir 50 milljóna króna úthlutun til vinnustaðaklasa
Read more