Back to overview
30. mars 2016
Úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-og viðskiptaráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun vorið 2016. Um er að ræða 66 styrki til verkefna hringinn í kringum landið, en sérstaklega var horft til öryggismála. Alls nema styrkir til einstakra verkefna tæplega 596 m.kr. en 51. m.kr. verður úthlutað sérstaklega af ráðherra ferðamála til brýnna verkefna vegna öryggis á ferðamannastöðum að tillögu Stjórnstöðvar ferðamála. Hæstu einstöku styrkirnir eru 30 m.kr. og eru veittir fjórir slíkir; til verkefna við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss. Nánari upplýsingar um hvernig styrkir dreifast um landið, hvaða verkefni fengu styrk og auk þess nýja skýrslu iðnaðar-og viðskiptaráðherra um ferðamál má lesa um hér

Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more