Back to overview
4. maí 2010
Undirritun Menningarsamnings og úthlutun menningarstyrkja 2010

Í gær mánudaginn 3. maí var undirritaður Menningarsamningur fyrir 2010 á milli mennta-og menningarmálaráðherra og Sambands sunnlenskra sveitarfélaga. Auk þess var úthlutað menningarstyrkjum til liðlega 90 verkefna. Hæsta styrkinn að þessu sinni féll í skaut Friðriks Erlingssonar og Gunnars Þórðarsonar fyrir verkefnið "Ragnheiður" ný íslensk ópera í fullri lengd. Dagskráin fór fram við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Lúðrasveit Þorlákshafnar lék nokkur lög í upphafi athafnarinnar, Jóna Sigurbjartsdóttir formaður Menningarráðs Suðurlands flutti ávarp. Katrín Jakobsdóttir mennta-og menningarmálaráðherra afhenti verkefnastyrkina ásamt Dorothee Lubecki, menningarfulltrúa Suðurlands. Einnig lék tónlistarhópurinn Mandal nokkur lög og að síðustu söng unglingakór Selfosskirkju. Sveitarfélagið Ölfus bauð öllum upp á kaffi og meðlæti að athöfn lokinni.

Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more