Back to overview
11. ágúst 2014
Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra

Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra voru afhent þriðjudagskvöldið 29. júlí á Hellu. Verðlaunin fóru á fimm staði í ár. Hótel Rangá fékk verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið, Hulda Gústafsdóttir og Hinrik Bragason á Árbakka fengu verðlaun fyrir snyrtilegasta lögbýlið, Guðný Rósa Tómasdóttir og Bjarni Jóhannsson, Heiðvangi 9 á Hellu fengu verðlaun fyrir snyrtilegasta garðinn og loks fengu bæirnir Nefsholt hjá Olgeiri Engilbertssyni og Guðnýju Finnu Benediktsdóttur og Nefsholt 1 hjá Engilbert Olgeirssyni og Rán Jósepsdóttur verðlaun fyrir einstaklega snyrtileg býli. Á myndinni eru verðlaunahafarnir með blómin sín í steinkerjunum og viðurkenningarskjölin, frá vinstri, forsvarsmenn Hótel Rangár, þá Hulda og Hinrik, því næst Anna María Kristjánsdóttir, formaður umhverfisnefndar og við hlið hennar er Drífa Hjartardóttir, sveitarstjóri. Þar við hliðina eru hjónin í Heiðvangi 9 og síðan fjölskyldurnar í Nefsholti.

More articles

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Read more

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Read more

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Read more

10. nóvember 2026
SASS og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í samstarfi við Þjóðaróperuna
Read more