Back to overview
17. desember 2010
Tvísköttun á Suðurlandsvegi
Stjórn SASS hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu vegna áforma um upptöku veggjalda á Suðurlandsvegi:
Vegna frétta og umræðna í fjölmiðlum undanfarna daga um upptöku veggjalda á Suðurlandsvegi og fleiri leiðum í nágrenni Reykjavíkur þá vill stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga koma efirfarandi á framfæri:
Á síðasta ári var meðaltalsumferð um Suðurlandsveg á milli Selfoss og Reykjavíkur um 8000 bílar á sólarhring. Áætla má að eldsneytisskattar af þessari umferð hafi numið um einum og hálfum milljarði króna og þá er ekki tekið tillit til annarra tekna af umferðinni s.s. bifreiðasköttum og vörugjöldum. Ef veggjöld verða lögð á samkvæmt fyrrgreindum fréttum nemur sú upphæð um einum milljarði króna á ári vegna umferðar um Suðurlandsveg. Samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar kostar breikkun Suðurlandsvegar, sem framkvæmdir eru hafnar við, um 16 milljörðum.......
króna. Miðað við ofangreindar forsendur þá greiðist kostnaður við verkið upp á innan við 10 árum að teknu tilliti til 3.5% ávöxtunar. Ef veggjöld verða tekin upp án þess að eldisneytisskattar verði lækkaðir á móti er ljóst að um hreina tvísköttun verður að ræða.
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hvetur yfirvöld samgöngumála til þess að hafa samráð við sunnlensk sveitarfélög um þessar auknu álögur á íbúa Suðurlands með tilkomu vegtolla á Suðurlandsvegi og að fulls jafnræðis verði gætt á milli íbúa landsins hver sem niðurstaðan verður. Í því sambandi bendir stjórn SASS á að nú greiða Vestmannaeyingar ígildi hárra veggjalda á milli Eyja og Landeyjahafnar sem hvergi eiga sér hliðstæðu í þjóðvegakerfinu. Nauðsynlegt er að taka þau mál til endurskoðunar.
Stjórnin hefur óskað eftir fundi með Ögmundi Jónassyni samgönguráðherra vegna málsins.
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more