Back to overview
20. febrúar 2023
Þrjú sunnlensk verkefni á fjárfestahátíð

SASS og samstarfsstofnanir á Suðurlandi hafa í samstarfi við Norðanátt unnið að kynningu fjárfestahátíðinni á Sigufirði.
Nú liggur fyrir að af þeim 14 verkefnum sem valin voru til þátttöku eru þrjú verkefni af Suðurlandi. Þau eiga það sameiginlegt að hafa öll þegið stuðning SASS á fyrri stigum, sem styrkþegar Uppbyggingarsjóðs Suðurlands eða sem þátttakendur í Sóknarfærum Suðurlands. Þetta er í annað sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en í ár var öllum landshlutum boðið að taka þátt og sóttu þrjátíu verkefni af öllu landinu um á Fjárfestahátíðina.
Verkefnin sem munu taka þátt á Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023 eru:
Bambahús - Úr drasli í nasl (VF)
Biopol - Ocean Gold (N)
EONE ehf. - e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)
Frostþurrkun ehf. - Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum (S)
Gefn - Nýsköpun í grænni efnafræði (H)
GeoSilica Iceland - GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð (R)
GreenBytes - Reducing food waste and increasing profit in restaurants. (H)
Gull úr Grasi - Tryggjum fóður og fæðuöryggi (N)
IceWind - Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum (H)
Kaja Organic - Jurtamjólkur verksmiðja (V)
Melta - Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang* sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði (S)
Skógarplöntur ehf. - Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt (N)
Vínland Vínekran - Vínrækt, víngerð, veitingarstaður og vínmeðferða Spa (S)
YGG - Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum (A)
Verkefnin af Suðurlandi eru Frostþurrkun ehf., Melta og Vínland Vínekran.
Fjárfestahátíðin verður haldin á Siglufirði dagana 29. og 30. mars. Nánari upplýsingar á vef Norðanáttar hér.







