Back to overview
24. september 2014
Sveitarfélagið Ölfus eignast 9% hlut í leikskólum Hveragerðibæjar

Bæjarráð Hveragerðisbæjar hefur samþykkt að Sveitarfélagið Ölfus eignist 9% hlut í leikskólum Hveragerðisbæjar gegn greiðslu sama hlutfalls í uppreiknuðu endurstofnverði leikskólans Óskalands. Börn á leikskólaaldri með lögheimili í dreifbýli Sveitarfélagsins Ölfuss njóti í kjölfarið sama aðgengis að leikskólum í Hveragerðisbæ og börn með lögheimili í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið Ölfus mun greiða rekstrarkostnað leikskólanna í hlutfalli við barnafjölda úr sveitarfélaginu á hverjum tíma. Kostnaður vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning verður metinn sérstaklega og um hann samið hverju sinni. Jafnframt hefur verið samþykkt tað samstarfssamningur milli sveitarfélaganna, með gildi frá 1. janúar 2004, sem m.a. tekur á skólamálum verði endurskoðaður og lagður fyrir bæjarstjórnir sveitarfélaganna til staðfestingar í október 2014. Í samningnum verði gert ráð fyrir því að eignarhlutur Ölfusinga í leikskólum Hveragerðisbæjar verði 9% og verði kostnaðarþátttaka sveitarfélagsins Ölfuss vegna framtíðar uppbyggingar leikskólamannvirkja og viðhalds í samræmi við það. Í ljósi þessarar ákvörðunar mun þeim börnum úr Ölfusi sem nú eru á biðlista eftir leikskólaplássum í leikskólum Hveragerðisbæjar verða boðið pláss á leikskólum Hveragerðisbæjar hið allra fyrsta. Þetta kemur m.a. fram í síðustu fundargerð bæjarráðs Hveragerðisbæjar.




More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more