Back to overview
18. janúar 2016
Styrkir til atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2016 lausa til umsóknar.
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.
- Verkefnið sé í eigu konu/kvenna (50%) og stjórnað af konu.
- Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
- Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
- Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
- Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
- Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.
Sérstök áhersla er lögð á, að styðja við þau verkefni sem eru á frumstigi þróunar og hafa ekki hlotið styrki. Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.
Umsóknarfrestur er frá 18.janúar til og með 22.febrúar og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is
Nánari upplýsingar í síma 531-7080 eða á netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is
More articles

24. nóvember 2026
Starfsfólk SASS sótti nýja þekkingu á norræna byggðaþróunarráðstefnu í Árósum
Read more

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Read more

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Read more

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Read more