Back to overview
3. janúar 2013
SASS og Atvinnuþróunarfélag sameinast
Nú um áramótin sameinaðist starfsemi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands undir nafni samtakanna og atvinnuþróunarfélagið lagt niður sem sérstök stofnun. Sameiningin er í samræmi við aðalfundarsamþykktir beggja stofnananna frá 18. og 19. október sl.
Ekki verða neinar eðlisbreytingar á starfseminni við þessi skipti og geta því fyrirtæki og einstaklingar leitað til SASS um ráðgjöf eins og þeir gerðu áður til Atvinnuþróunarfélagsins. Framundan er stefnumótunarvinna og endurskipulagning á starfseminni og verða hugsanlegar breytingar kynntar þegar þær liggja fyrir. Þá verða heimasíður sameinaðar en þangað til verða núverandi heimasíður starfræktar. Settar verða upp skýrar tengingar þeirra á milli.
Share article
More articles

18. september 2026
Breytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um næstu áramót
Read more

17. september 2026
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Read more

16. september 2026
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Read more

16. september 2026
SS, Reykjagarður og Límtré Vírnet taka þátt í taka þátt í fyrstu lotu Kveikjunnar
Read more