Back to overview
2. mars 2016
Samningar við samstarfsaðila SASS

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga í samstarfi við þekkingarsetur á Suðurlandi og Markaðsstofu Suðurlands, veita ráðgjafaþjónustu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála og aðstoða við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Hægt er að hafa samband beint við neðangreinda ráðgjafa eða senda fyrirspurn eða ósk um ráðgjöf á netfangið radgjof@sudurland.is.
Gerður hefur verið samstarfssamningur við eftirfarandi stofnanir um ráðgjafaþjónustu:
- Háskólafélag Suðurlands
- Markaðsstofa Suðurlands
- Þekkingarsetrið Vestmannaeyjum
- Kötlusetrið Vík í Mýrdal
- Nýheimar Höfn í Hornafirði
Þjónustan er gjaldfrjáls upp að ákveðnu marki. Gjaldfrjáls þjónusta miðast við almanaksárið og er allt að 7 klukkustundir fyrir einstaklinga og fyrirtæki og allt að 20 klukkustundir fyrir stofnanir.
More articles

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Read more

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Read more

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Read more

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Read more