Back to overview
1. desember 2022
Óskað er eftir tilnefningum til menntaverðlauna Suðurlands 2022

SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2022. Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.
Allir þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.
Tilnefningar skulu berast til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti fimmtudaginn 5. janúar nk. Tilnefningar berist á netfangið menntaverdlaun@sudurland.is
Verðlaunin verða nú veitt í 15. sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs, sem og formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tenglsum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í janúar nk.
More articles

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Read more

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Read more

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Read more

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Read more